fdroiddata/metadata/jackpal.androidterm/is/description.txt

33 lines
2 KiB
Plaintext
Raw Normal View History

Fáðu aðgang að innbyggðu Linux skipanalínuskelinni þinni í Android. Slepptu tölvunördinum í þér lausum!
Þetta er ný útgáfa af "Android Terminal Emulator" skjáhermiforritinu. Sama frábæra forritið, bara með nýju nafni.
Helstu eiginleikar
+ Full Linux skjáherming.
+ Margir gluggar.
+ Flýtiræsingar.
+ UTF-8 texti. (arabíska, kínverska, gríska, hebreska, japanska, kóreska, rússneska, tælenska, o.s.frv.)
+ Algerlega frjálst. Kostar ekkert, engar auglýsingar, ekkert að kaupa í forritinu, engir nöldurgluggar; ekkert svoleiðis.
Skyndilausnir:
+ Ef þú ert í vandræðum með að setja inn texta, prófaðu að setja upp frjálsa "Hacker's Keyboard IME" (sérstaklega ef þú ert með Samsung eða HTC tæki).
+ Þetta forrit er ekki leikjahermir.
+ Þetta forrit getur ekki hjálpað þér til að ná rótaraðgangi (root) á tækinu þínu eða breytt IMEI símans.
+ Þú þarft að þekkja (eða vilja læra) hvernig maður notar Linux skipanalínu til að nota þetta forrit.
+ Þú gætir viljað setja upp ýmis skipanalínutól á borð við "Busy Box" eða "Debian chroot" til að bæta skipunum við þær sem koma þegar með Android-tækinu.
+ Ef þú færð -505 villu þegar þú reynir að setja þetta upp í Android 5.0, þýðir það að eitthvað annað forrit er að nota sömu heimildirnar. Þú þarft þá að fjarlægja hitt forritið til að geta sett upp Skjáhermi fyrir Android (sagt er að "jrummy's Toolbox Pro" valdi þessu vandamáli.)
Viltu vita meira um Skjáhermi (Terminal) fyrir Android?
Skráðu þig í G+ hópinn: #Android Terminal Emulator
https://plus.google.com/u/0/communities/106164413936367578283
Frekari upplýsingar eru á hjálparvefnum:
http://github.com/jackpal/Android-Terminal-Emulator/wiki
Viltu bæta við eða gera betri þýðingar á Terminal Emulator skipanalínuskelinni fyrir Android? Skoðaðu https://github.com/jackpal/Android-Terminal-Emulator/wiki/Translating-to-Other-Languages til að sjá leiðbeiningar um hvernig það er hægt.