Lestu upplýsingar sem leynast í strikamerkjum eða útbúðu QR-kóða til að deila vefslóðum, netföngum eða texta á milli tækja. Leit að bókum, vörum og vefsíðum fara á Google vefþjóna (fer eftir upprunalandi), en þó er hægt að sérsníða leitarhnapp í stillingunum, t.d. duckduckgo.com/?q=%s eða wikibooks.org/w/index.php?search=%s. Styður eftirfarandi gerðir strikamerkja: * UPC-A og UPC-E * EAN-8 og EAN-13 * Code 39; 93; 128 * ITF * Codabar * RSS-14 (öll tilbrigði) * QR-kóði * Data Matrix * Aztec ('beta'-gæði) * PDF 417 ('alpha'-gæði) Skoðaðu vefsvæðið fyrir upplýsingar um villuleit og útskýringar á heimildum. Forritið gerir kleift að deila tengiliðum, forritum og bókamerkjum í QR-kóða. Þess vegna þarf heimildir til að skoða tengiliði. Skoðaðu "Visit Developer Website" hér fyrir neðan ( https://github.com/zxing/zxing/wiki/Frequently-Asked-Questions ). Ef tækið þitt nær ekki að skanna, prófaðu fyrst lausnirnar fyrir tækjavillur í stillingunum. Virkjaðu þær allar, og ef skönnun heppnast, prófaðu að afvirkja lausnirnar eina í einu til að ákvarða hver þeirra sé nauðsynleg. Ef þetta dugar ekki, prófaðu þá að hreinsa skyndiminni tækisins og stillingar þess í Android-stillingunum. Ef þessar lausnir virka samt ekki og þú heldur að um sé að ræða vandamál í forritinu, sendu þá höfundinum skilaboð með eftirfarandi upplýsingum. Skilaboð þar sem þessar upplýsingar vantar er ekkert hægt að gera við, og verða þau þá hunsuð. - Gerð tækis - Einföld lýsing á því sem ekki virkar: hrynur? skannar ekki? lítur skringilega út? - Yfirlýsing um að þú hafir fyrst prófað skrefin hér fyrir ofan - Skráning í atvikaskrá frá því forritið var ræst