fdroiddata/metadata/org.fdroid.fdroid.privileged.ota/is/description.txt
2019-03-29 07:32:14 +01:00

14 lines
1.1 KiB
Plaintext

F-Droid þarfnast rótaraðgangs til að geta sett upp F-Droid forgangsviðbótina sem "priv-app" í kerfinu.
[[org.fdroid.fdroid]] getur nýtt sér kerfisheimildir til að setja upp, uppfæra og fjarlægja forrit án utanaðkomandi afskipta. Eina leiðin til að öðlast þessar heimildir er að gerast kerfisforrit.
Þarna kemur forgangsviðbótin til skjalana - hún er sjálfstætt forrit og mikið minna, hægt er að setja það upp sem kerfisforrit sem á samskipti við aðalforritið með AIDL IPC.
Þetta hefur ýmsa kosti í för með sér:
* Minna pláss notað á disksneið (minnishluta) kerfisins
* Kerfisuppfærslur fjarlægja ekki F-Droid
* Ferlið við uppsetningu inn í kerfið í gegnum rótaraðgang er öruggara
Þessu er pakkað sem OTA (Over-The-Air) ZIP-uppfærsluskrá. Það verður að setja upp með TWRP eða öðrum Android-endurheimtuhugbúnaði sem getur flassað (flash) uppfærslum inn í kerfið úr /data/data/org.fdroid.fdroid möppunni á /data disksneiðinni. Kallað er í sjálfstæða APK-pakkann [[org.fdroid.fdroid.privileged]], og sér hann um að útvega uppfærslur eftir að þessi OTA-pakki hefur verið settur inn.