fdroiddata/metadata/org.mozilla.klar/is/description.txt
2019-03-29 07:32:14 +01:00

16 lines
1.3 KiB
Plaintext

Vafraðu eins og enginn sé að fylgjast með. Nýi Firefox Klar lokar sjálfvirkt á fjölda vefskrásetjara — frá því þú ræsir hann þar til þú lokar honum. Einfalt að hreinsa ferilskrá, lykilorð og vefkökur, þannig að þér verði ekki fylgt eftir með hlutum á borð við óumbeðnar auglýsingar.
“Einkavafur” er í flestum vöfrum hvorki auðskiljanlegt né einfalt í notkun. Klar stendur fyrir næsta stigi gagnaleyndar, sem alltaf er frjálst, er alltaf virkt, og sem stendur alltaf með þér — því það er stutt af Mozilla, samtökum án ágóðasjónarmiða sem berjast fyrir réttindum þínum á netinu.
SJÁLVIRK PRESÓNUVERND
• Lokar á fjölbreytta flóru vefskráningar- og njósnaforrita án þess að neitt þurfi að stilla sérstaklega
• Einfalt að hreinsa ferilskrá — engin lykilorð, engar vefkökur, engin njósnaforrit
VAFRA HRAÐAR
• Með því að fjarlægja skrásetjara og auglýsingar þurfa vefsíður oft minna af gögnum og hlaðast fyrr inn
GERT AF MOZILLA
• Við trúum því staðfastlega að allir eigi að hafa stjórn á hegðun sinni á netinu. Þessu höfum við barist fyrir allt síðan 1998.
Firefox Klar er útgáfa af Firefox Focus fyrir Þýskaland, Austurríki og Sviss, með sjálfgefið slökkt á öllu eftirliti með ferðum notenda.